Foreign Monkeys kemur út í dag!
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
29
Apr
2009
Í dag gefur Record Records út fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar Foreign Monkeys. Platan heitir π (PI) og er búin að vera í vinnslu í tæp 2 ár.
Nánari upplýsingar í frétt að neðan.
Forpantaðu Foreign Monkeys
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
5
Apr
2009
Nú getur þú forpantað væntanlega breiðskífu Foreign Monkeys í vefverslun Record Records og þá færðu plötuna senda heim um leið og hún lendir.
Foreign Monkeys sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
2
Apr
2009
24. apríl nk. gefur Record Records út fyrstu breiðskífu Foreign Monkeys frá Vestmannaeyjum, platan hefur hlotið nafnið π (PI).
Hljómsveitin hefur unnið að þessari plötu í tæp 2 ár og var það Magnús Øder sem sá um upptökur á plötunni en hann er best þekktur fyrir vinnu sína með Lay Low og Benny Crespo’s Gang.
Fyrsta smáskífa plötunnar, Love Song, hefur þegar fengið að hljóma á íslenskum útvarpsstöðum og náði m.a. á topp 20 á X-dominos listanum.
Nú er önnur smáskífa plötunnar farin að hljóma en það er lagið Molla.
Hér er á ferðinni eins þétt og kröftug rokk plata og þær gerast!
Foreign Monkeys var stofnuð í desember 2005. Árið 2006 tóku drengirnir svo þátt í Músík tilraunum og sigruðu þær að sjálfsögðu. Síðan þá hafa þeir spilað á fjöldan allan af tónleikum, þ.á.m. hitað upp í Laugardalshöllinni fyrir Badly Drawn Boy, Elbow, Echo And The Bunnymen o.fl.
Foreign Monkeys skipa:
Bogi – bassi og söngur
Gísli – gítar og söngur
Leifur – gítar
Víðir – trommur
Ný Deathwish sending
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
23
Mar
2009
Það fyllist jafnt og þétt á Deathwish listann hjá okkur eftir við byrjuðum að dreifa þeirra útgáfum á Íslandi.
Meðal þess sem kom í dag er:
Cold World, Victims, Blacklisted, Doomriders, The Hope Conspiracy o.fl.
Fyrsta sendingin komin í hús
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
10
Mar
2009
Fyrsta sendingin frá Deathwish Inc. og Equal Vision Records er komin í hús, þó svo hún sé lítil er hún byrjunin á einhverju stóru.
CD:
Trap Them – Seizures In Barren Praise
Converge – Jane Doe
Converge – Petitioning The Empty Sky
Converge – When Forever Comes Crashing
Converge – Unloved and Weeded Out
Modern Life Is War – Witness
Modern Life Is War – Midnight In America
Comeback Kid – Turn It Around
Engine Down – Demure
Architects – Hollow Crown
Architects – Ruin
Vínill:
Trap Them – Seizures In Barren Praise
Nýtt í dreifingu
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
10
Mar
2009
2 nýjir titlar frá Molestin Records bættust í listann hjá okkur í dag.
Plastic Gods – Quadriplegiac
Ask The Slave – Kiss Your Chora
Record Records dreifir Deathwish Inc. og Equal Vision Records á Íslandi!
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
11
Feb
2009
Record Records hefur hafið innflutning á plötum frá harðkjarna útgáfunum Deathwish Inc. og Equal Vision Records.
Í nokkurn tíma hefur verið erfitt fyrir harðkjarna unnendur á Íslandi að nálgast plötur á þessum virtustu harðkjarna útgefendum í heiminum í dag en nú kemur það til með að lagast.
Karkari er kominn út!
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
27
Aug
2008
Fyrsta útgáfa Record Records er komin út, það er platan ‘Karkari’ og er önnur breiðskífa Mammút.
Karkari fæst í öllum betri plötuverslunum landsins.
Fyrsta útgáfa Record Records kemur út 27. ágúst
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
1
Aug
2008
Önnur breiðskífa Mammút kemur út 27. ágúst hjá Record Records. Platan hefur hlotið nafnið ‘Karkari’ og er alveg hreint frábær!
Fyrsta smáskífa af væntanlegri breiðskífu Mammút komin út
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
9
Mar
2008
Fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu Mammút kom út í dag. Lagið er farið að hljóma á útvarpsstöðvum og er nú fáanlegt á iTunes, Tónlist.is og Grapewire.