Miðvikudagskvöldið 21. desember ætlar lúðraþytsbandið Orphic Oxtra að fagna útgáfu nýjustu breiðskífu sinnar, Kebab Diskó sem kom út hjá Record Records í október sl.
Mun Orphic Oxtra flytja sína óhreinræktuðu skringi-balkan-tónlist í hliðarsal Faktorý á slaginu kl. 23:00. Sveitin lofar mjög náinni dansstund, svita og jafnvel tárum. Mannmergð hljómsveitarinnar verður meiri en nokkru sinni fyrr og því má búast við hörku tónleikum frá Orphic Oxtra.
Aðgangur er ókeypis!
Ekki missa af þessu!
