Stuðbandið Retro Stefson sendir í dag frá sér 7 tommu vínyl plötu með laginu Qween og á b-hlið plötunnar er að finna remix af laginu eftir Hermigervil.
Lagið Qween hefur verið geysivinsælt hér á landi síðan það kom út í blálok síðasta árs og hefur sveitin verið afar áberandi m.a. í nýrri auglýsingaherferð Vodafone.
Retro Stefson hafa verið í hljóðveri undanfarið við upptökur á nýrri breiðskífu sem er áætlað að komi út í lok sumars en þangað til verðum við að láta þessa 7 tommu nægja af nýju efni frá Retro Stefson. Platan er gefin út í takmörkuðu upplagi, aðeins 300 eintök og er um að ræða picture disc vínyl plötur þar sem prentað er beint á vínylinn. Þetta er fyrsta plata sem Retro Stefson gefur út undir merkjum Record Records.
