Retro Stefson heldur útgáfutónleika í Iðnó
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
25
Sep
2012
Útgáfutónleikar Retro Stefson í Iðnó.
Föstudaginn 5. október og laugadaginn 6. október.
Hermigervill setur alla í stuð.
Miðasala á Miði.is.
Í tilefni af útgáfu hljómplötunnar Retro Stefson með samnefndri hljómsveit verða haldnir útgáfutónleikar í Iðnó föstudaginn 5. október nk. kl. 22 (húsið opnar kl. 21). Auk Retro Stefson mun tónlistarmaðurinn Hermigervill stíga á stokk. Miðasala hefst á midi.is fimmtudaginn 20. september.
Þriðjudaginn 2. október kemur út þriðja hljómplata Retro Stefson og ber hún nafn sveitarinnar. Á plötunni er að finna 10 ný lög með hljómsveitinni þar á meðal Qween og Glow sem hafa gert það gott á öldum ljósvakans sl. mánuði. Hljómsveitin leitaði í smiðju Hermigervils og Styrmis Haukssonar til að ná fram æskilegum hljóðheimi. Á plötunni kennir ýmissa grasa og víða leitað fanga í straumum og stefnum tónlistarinnar. Þó er Retro Stefson fyrst og fremst hljómsveit nútíðar og framtíðar. Afraksturinn eru 39 mínútna eyrnakonfekt heyrn er sögu ríkari! Útgefandi er Record Records.
Retro Stefson hefur að undanförnu verið við æfingar og útsetningar á nýja efninu sem verður frumflutt á útgáfutónleikunum. Hljómsveitin hefur ekki komið fram í Iðnó lengi og þar verður ölli tjaldað til svo gera megi tónleikana sem eftirminnilegasta.
Ojba Rasta sendir frá sér sína fyrstu plötu
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
13
Sep
2012
Íslenska gæðareggae sveitin Ojba Rasta sendir frá sér sína fyrstu plötu á þriðjudaginn 18. september. Platan sem er samnefnd sveitinni hefur verið í vinnslu í þó nokkurn tíma og hafa landsmenn fengið að heyra 3 lög af plötunni á öldum ljósvakans. Lögin Baldursbrá og Jolly Good hafa lagst vel í landann og nú síðast er lagið lagið Hreppstjórinn farið að heyrast.
Platan kemur út á vegum Record Records og verður hún fáanleg bæði á CD og vínyl.
Forsala hefst í dag á stafrænni útgáfu á plötunni hjá Gogoyoko.com
Ojba Rasta var stofnuð í Reykjavík á því herrans ári 2009. Eftir mannabreytingar endaði hún sem ellefu manna hljómsveit, þó alltaf hafi hún haft það fyrir stefnu að spila reggí músík með döbb ívafi.
Áhrifavaldar eru fjölmargir, en í þessum tónlistarlega bragðaref hefur verið blandað saman heimstónlist, kvikmyndatónlist, kvæðalögum og öðru sem til fellur og eyra er næst. Bandinu hefur vegnað vel á vinsældarlistum útvarpsstöðva og hefur auk þess hlotið lof fyrir líflega sviðsframkomu undanfarin misseri, en nú loks er frumburður Ojba Rasta orðinn að veruleika. Platan er samnefnd hljómsveitinni og ber átta frumsamin lög í fórum sínum. Þar má heyra sungið um örlög, ástir og ævintýri nokkurra peða á plánetunni jörð.
Retro Stefson gefur út 7 tommu
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
25
May
2012
Stuðbandið Retro Stefson sendir í dag frá sér 7 tommu vínyl plötu með laginu Qween og á b-hlið plötunnar er að finna remix af laginu eftir Hermigervil.
Lagið Qween hefur verið geysivinsælt hér á landi síðan það kom út í blálok síðasta árs og hefur sveitin verið afar áberandi m.a. í nýrri auglýsingaherferð Vodafone.
Retro Stefson hafa verið í hljóðveri undanfarið við upptökur á nýrri breiðskífu sem er áætlað að komi út í lok sumars en þangað til verðum við að láta þessa 7 tommu nægja af nýju efni frá Retro Stefson. Platan er gefin út í takmörkuðu upplagi, aðeins 300 eintök og er um að ræða picture disc vínyl plötur þar sem prentað er beint á vínylinn. Þetta er fyrsta plata sem Retro Stefson gefur út undir merkjum Record Records.




