Tónleikaferð Of Monsters and Men um Bandaríkin hófst fyrr í þessum mánuði og hefur sveitin verið að slá í gegn eins og við mátti búast. Áður en ferðin hófst var þegar uppselt á nánast alla tónleika sveitarinnar svo að það var ekki við öðru að búast en að ferðin myndi heppnast vel. Hér má sjá myndband frá acoustic tónleikum sveitarinnar í húsi Spotify á SXSW tónleikahátíðinni í Austin, Texas.