Agent Fresco
Agent Fresco var stofnuð í byrjun árs 2008 og vakti sveitin fyrst verðskuldaða athygli þegar hún sigraði Músíktilraunir 2008. Í kjölfarið gaf sveitin út sína fyrstu smáskífu Eyes of a Cloud Catcher sem fékk mjög góðar viðtökur og náði m.a. topp sæti X-dómínós listans á X-inu FM 97,7. Í desember sama ár kom EP platan Lightbulb Universe út og fékk hún frábærar viðtökur tónlistarunnenda og gagnrýnenda.
Bloodgroup
Bloodgroup var stofnuð árið 2006 af Janusi Rasmussen og systkynunum Halli, Lilju og Ragnari Jónsbörnum. Í lok árs 2007 gaf hún út vel heppnaða plötu, þeirra fyrstu plötu, Sticky Situation, sem var stútfull af dansvænum lögum. Nú er það hinsvegar nýja platan Dry Land sem á að tröllríða öllu. Í október 2009 sendi Bloodgroup frá sér fyrsta lagið af nýju plötunni, lagið My Arms, þar fékk landinn að heyra hversu mikið sveitin hefur þróast, og vilja menn meina að það hefur aðeins verið til betri vegar.
Ensími
Hljómsveitin Ensími var stofnuð árið 1996. Upphafsmenn og stofnendur voru Hrafn Thoroddsen og Jón Örn Arnarson. Þeir félagar höfðu getir sér gott orð sem meðlimir í einni vinsælustu rokkhljómsveit landsins á þessu tíma en langaði breyta til að gera eitthvað nýtt og spennandi. Eftir tímabil tilrauna með hljóðsmala og rafmagnsgítara fór tónlistin að taka á sig mynd.
Foreign Monkeys
Foreign Monkeys var stofnuð í desember 2005. Árið 2006 tóku drengirnir svo þátt í Músíktilraunum og sigruðu þær. Síðan þá hafa þeir spilað á fjöldan allan af tónleikum, þ.á.m. hitað upp í Laugardalshöllinni fyrir Badly Drawn Boy, Elbow, Echo and the Bunnymen o.fl.
Kiriyama Family
Kiriyama Family er Íslenskur elektrópopp kvintett. Nafnið er komið úr Japönsku skáldsögunni Battle Royale eftir Köshun Takami. Sveitin var stofnuð árið 2008 og er hún nú tilbúin með sína fyrstu breiðskífu samnefnda sveitinni.
Lára
Lára Rúnarsdóttir er ung og efnileg söngkona sem hefur alið af sér þrjár sólóplötur. Sú nýjasta heitir Surprise og kom út í október 2009 á vegum Record Records. Áður hafði hún gefið út Standing Still árið 2003 og Þögn árið 2006.
Lockerbie
Lockerbie er hljómsveit sem er frekar ný af nálinni en ævintýrið byrjaði þegar hljómsveitin var valin ein af sigursveitum Sumarkeppni Rásar 2 og Sýrlands. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, mikil umfjöllun hefur verið um hljómsveitina erlendis, bæði í virtum tónlistarbloggum á netinu og í fjölmiðlum. Hljómsveitin var meðal annars valin hljómsveit vikunnar í þættinum Breitband hjá Christian Grasse í Þýska ríkisútvarpinu. Öll lögin á plötunni eru sungin á íslensku og þykja afskaplega hlustendavæn.
Mammút
Hljómsveitin Mammút var stofnuð árið 2003 sem stúlknatríóið ROK. Mammút nafnið var þó tekið upp fljótlega og bættust þá strákarnir í hópinn. Mammút tók þátt í Músíktilraunum 2004 og bar sigur af hólmi. Tveimur árum seinna gaf sveitin út samnefnda plötu sem var tekin upp í Sundlauginni fyrir verðlaunin frá Músíktilraunum.
Moses Hightower
Í kjölfar útgáfu plötunnar Búum til börn sumarið 2010 festu drengirnir í Moses Hightower sig í sessi sem dugmikla og metnaðarfulla flytjendur, ekki síður en framleiðendur, seigfljótandi og sálarskotinnar tónlistar.
Of Monsters and Men
Of Monsters and Men sigruðu Músíktilraunir 2010 og hafa síðan þá verið mjög lífleg og spilað á fjöldan allan af tónleikum. Þau nýttu verðlaun sín frá Músíktilraunum til að taka upp tvö demó í Sundlauginni og settu á kynningardisk fyrir Iceland Airwaves hátíðina síðustu. Uppúr því fengu þau útgáfusamning við Record Records. Fyrsta breiðskífa þeirra kemur út 20. september á Íslandi. Forsala plötunnar er hafin í vefversluninni hér að ofan.
Orphic Oxtra
Orphic Oxtra leikur hressandi balkan tónlist sem allir geta notið þess að hlusta á. Sveitin var stofnuð haustið 2009. Fyrsta platan var svo tekin upp sumarið 2010 og kom út í nóvember 2010. Nú eru þau með aðra breiðskífu sína tilbúna sem heitir Kebab diskó og kemur út undir merki Record Records.
Pollapönk
Pollapönk er hugarfóstur leikskólakennarana Heiðars og Halla, oft kennda við hljómsveitina Botnleðju. Geisladiskurinn Pollapönk (2006) var útskriftarverkefni þeirra við Kennaraháskóla Íslands. Skemmst er frá því að segja að sá diskur féll í góðan jarðveg bæði hjá börnum og fullorðnum. Lög eins og “Leyniskápurinn” og “Aðalsteinn” voru mikið spiluð og nutu mikilla vinsælda.
Sykur
Hljómsveitin Sykur var stofnuð í lok maí 2008 af Stefáni og Halldóri. Áramótin 2008/2009 gekk svo þriðji meðlimurinn til liðs við sveitina, Kristján Eldjárn. Stefán er 17 ára, Halldór 18 ára og Kristján 20 ára. Áhrifavaldar Sykurs eru Air, Serge Gainsbourg, Giorgio Moroder, Bloodgroup og FM Belfast.
Tilbury
Hljómsveitin Tilbury var sett saman af trommaranum Þormóði Dagssyni (Skakkamanage, Jeff Who?, Hudson Wayne) sumarið 2010. Upphaflega var um sólóverkefni að ræða sem nefndist Formaður Dagsbrúnar en fljótlega eftir að upptökur hófust á fyrstu breiðskífunni leit hljómsveitin Tilbury dagsins ljós.


