Of Monsters and Men að gera það gott á sinni fyrstu tónleikaferð
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
26
Mar
2012
Tónleikaferð Of Monsters and Men um Bandaríkin hófst fyrr í þessum mánuði og hefur sveitin verið að slá í gegn eins og við mátti búast. Áður en ferðin hófst var þegar uppselt á nánast alla tónleika sveitarinnar svo að það var ekki við öðru að búast en að ferðin myndi heppnast vel. Hér má sjá myndband frá acoustic tónleikum sveitarinnar í húsi Spotify á SXSW tónleikahátíðinni í Austin, Texas.
Agent Fresco órafmagnaðir í Gamla Bíói
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
25
Feb
2012
Hljómsveitin Agent Fresco spilar á órafmögnuðum tónleikum ásamt strengjasveit í Gamla Bíói föstudagskvöldið 9. mars. Sveitin kemur ekki oft fram órafmagnað en í þau skipti sem hún hefur gert það hefur hún hlotið mikið lof fyrir.
Agent Fresco gaf út breiðskífuna A Long Time Listening í lok árs 2010 en um þessar mundir er sveitin að undirbúa tónleikaferð um Evrópu sem verður í sumar til að fylgja á eftir útgáfu plötunnar, en hún mun koma út í Evrópu í Maí á þessu ári. Á sama tíma er sveitin á fullu að semja efni fyrir nýja plötu sem mun þó ekki líta dagsins ljós fyrr en á næsta ári.
Upphitun verður í höndum Eldar sem er skipuð Valdimar Guðmundssyni og Björgvin Ívari Baldurssyni.
Húsið opnar kl. 21
Tónleikar hefjast kl. 22
Miðaverð á tónleikana er 2500 kr. og er miðasala hafin á Miði.is, verslunum Brim og í miðasölu Gamla Bíós.
Nýtt myndband frá Orphic Oxtra vekur athygli
Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments
12
Jan
2012
Þetta nýja bráðskemmtilega myndband frá Orphic Oxtra er að vekja talsverða athygli þessa dagana…
