Þetta nýja bráðskemmtilega myndband frá Orphic Oxtra er að vekja talsverða athygli þessa dagana…

Miðvikudagskvöldið 21. desember ætlar lúðraþytsbandið Orphic Oxtra að fagna útgáfu nýjustu breiðskífu sinnar, Kebab Diskó sem kom út hjá Record Records í október sl.
Mun Orphic Oxtra flytja sína óhreinræktuðu skringi-balkan-tónlist í hliðarsal Faktorý á slaginu kl. 23:00. Sveitin lofar mjög náinni dansstund, svita og jafnvel tárum. Mannmergð hljómsveitarinnar verður meiri en nokkru sinni fyrr og því má búast við hörku tónleikum frá Orphic Oxtra.
Aðgangur er ókeypis!

Ekki missa af þessu!

Jólaplögg Record Records 2011

Posted by RecordRecords in Fréttir | 0 Comments

10

Dec

2011

Það er heldur betur farið að styttast í Jólaplögg Record Records 2011. Í ár fer það fram á Nasa við Austurvöll föstudagskvöldið 16. desember.
Miðasala er hafin á Miði.is og er miðaverð 1500 kr. í forsölu.

Fram koma:
Of Monsters and Men
Agent Fresco
Sykur
Orphic Oxtra
Lockerbie

Tónleikarnir hefjast kl. 23:00

Page 1 of 25123451020...Last »