Hljómsveitin Sykur var stofnuð í lok maí 2008 af Stefáni og Halldóri. Áramótin 2008/2009 gekk svo þriðji meðlimurinn til liðs við sveitina, Kristján Eldjárn. Stefán er 17 ára, Halldór 18 ára og Kristján 20 ára. Áhrifavaldar Sykurs eru Air, Serge Gainsbourg, Giorgio Moroder, Bloodgroup og FM Belfast.
Sykur leikur oft með hinum ýmsu söngvurum og má þar nefna Rakeli Mjöll Leifsdóttur, Katrínu Mogensen og nú síðast Erpi Eyvindarsyni. Drengirnir leika allir á hljóðgervla og hina ýmsu hrif-fetla (effecta), að auki notast þeir við trommuheila.
